Seiðaflutningar í Kofradýpi

Undanfarnar vikur hafa staðið yfir flutningar frá Nauteyri yfir í Kofradýpi. Kofradýpi fór í hvíld í lok ágúst síðastliðnum og fékk því góða hvíld eða tæplega níu mánuði. Botnsýnaprufur teknar af Náttúrustofu Vestfjarða voru teknar í vor og komu mjög vel út að lokinni hvíld.

Áfram verður haldið að setja út fisk í Kofradýpi í sumar og frammá haust.

Fleiri fréttir