Eldissvæðið í Kofradýpi tekur á sig mynd

Undanfarnar vikur hefur eldissvæðið í Kofradýpi verið byggt upp að nýju eftir hvíld eins og við sögðum hér frá í júní. Það er í mörg horn að líta fyrir starfsmenn okkar.
Undanfarið hafa kvíar verið fluttar á staðinn, netpokar settir út, lúsaseglum komið fyrir, fóðurpramminn tryggilega skorðaður í ankerum, fóður- og rafmagnslagnir lagðar út frá honum og svo settar upp myndavélar, nemar og fóðurdreifarar. Eftir því sem að kvíunum hefur fjölgað hefur verið fyllt á jafnharðan með seiðum frá Nauteyri sem vaxa vel og dafna þessa dagana.
Nú styttist svo í að 10 ný laser tæki frá Stingray komi til okkar og verða þau þá orðin 30 talsins hjá fyrirtækinu. Með þeirri viðbót er fyrirtækið betur í stakk búið til þess að halda lúsaálagi niðri á virku staðsetningunum okkar tveimur, í Skarðshlíð og Kofradýpi.
Meðfylgjandi myndir voru teknar um borð í Erni, vinnubát okkar á dögunum, þegar verið var að koma einni kví fyrir í Kofradýpi.


