Lax úr Ísafjarðardjúpi er framúrskarandi sjávarafurð framleidd eftir ströngustu stöðlum í mikilli sátt við náttúruna.

Heimskautarefurinn

Í norðri lifir heimskautarefurinn við skilyrði sem krefjast útsjónarsemi og þrautseigju. Áður en menn námu hér land var hann eina spendýrið á landi, og afkoma hans byggðist á því að þekkja landið vel — firðina, árnar, ströndina — og finna fæðu sem dugði langan vetur.

Veiðarnar eru yfirvegaðar í takti við árstíðirnar. Engin veiði er trygg, en þegar vel tekst til tryggir það líf — ekki bara um stund, heldur til framtíðar.

Gæði í fyrirrúmi allan ferilinn

Í gegnum eldisferilinn hefur verið lagt upp með að líkja eftir náttúrulegum aðstæðum laxins hvað varðar hitastig, súrefni og að tryggja nægt pláss. Háafell velur að nota hærra hlutfall af fiskiolíu og fiskimjöli en er almennt notað í greininni. Eldisaðferðirnar eru svo miðaðar að því að hámarka velferð og lágmarka stress sem tryggir eins góð gæði á afurðinni og hægt er.

Vottanir

Háafell vinnur eftir tveimur megin stöðlum. Global GAP og Whole Foods-staðlinum. Whole Foods-staðallinn er mjög strangur og kveður meðal annars á um bann við notkun lyfja vegna lúsar, strangar þéttleikatakmarkanir, enga notkun kopars og kröfu um hátt hlutfall omega-3 fitusýra. Whole Foods setur sjálft þessar stífu kröfur og er aðeins hluti eldisfyrirtækja sem ná að uppfylla þær.

Lesa um Whole Foods
Hvert fer fiskurinn?
  • Asía

    Í samvinnu viðIcelandic Japan er laxinum okkar dreift um aðallega Japan og Taívan. Auk frystu afurðanna eru hafnar tilraunir með flutning á ferskum fiski til Asíu.

  • Norður Evrópa

    Ferskur lax er fluttur með skipum til Evrópu sem er stærsti markaður okkar.

  • Norður Ameríka

    Bandaríkjamarkaður er vaxandi markaður en þar hefur vörunni okkar verið vel tekið og með Whole Foods-staðlinum opnast frekar dyr að þeim markaði.