Fyrsta ferð með seiði frá Þorlákshöfn vel heppnuð

Í gær kom Valur, brunnbátur Háafells, til hafnar á Ísafirði eftir að hafa lokið fyrstu ferð í flutningi á seiðum frá Þorlákshöfn sem sett voru í sjókvíar í Kofradýpi í Ísafjarðardjúpi.

Háafell kaupir seiðin frá landeldisfyrirtækinu Thor Salmon í Þorlákshöfn og mun Valur flytja seiðin í þremur ferðum að þessu sinni. Eftir mikla uppbyggingu seiðaeldis á Nauteyri er verið að þrepa upp framleiðsluna þar en stöðin mun geta annað seiðaþörf Háafells til framtíðar miðað við núverandi leyfi. Möguleiki á að kaupa seiði frá landeldisfyrirtækjum styrkir nýtingu Háafells á sínum eldisleyfum með auknu vali á stærð seiða við útsetningu, tímasetningu útsetninga og til að mæta óvæntum áföllum í eigin framleiðslu á seiðum. Undanfarin ár hafa seiðakaup sjókvíaeldisfyrirtækja á seiðum frá landeldisfyrirtækjum aukist sem er gott dæmi um samlegðaráhrif í starfsemi þessara fyrirtækja.